Auglýsing

Im ALIVE!!!!

20. október 2006 klukkan 05:51
Jæja, ég sé að fólk er orðið ansi óþolinmótt að fá ekki blogg frá stelpunni. En hún er komin í bloggheiminn á ný. Fyndið þegar maður er búinn að vera netlaus þá er maður hálf eirðarlaus, en þegar maður er búinn að vera svona netlaus lengi, þá venst þetta bara ansi vel.....

Allaveganna þá fæ ég vonandi nettengingu fyrir austan núna eftir helgi.

En já það sem er svona helst að frétta af stelpunni þá er hún flutt í sveitasæluna, réttara sagt á HVOLSVÖLL........ hver hefði getað spáð því fyrir svona ári síðan að stelpan myndi flytja á Hvolsvöll og gerast þriggja barna móðir?? ....hehe........... en svona er lífið :D:D

Ég er sem sagt að vinna í Félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, sem er mjög fínt, en maður er svona rétt að komast inn í hlutina, læra nöfn og þess háttar. En er enn að vinna í Hafnarfirðinum í 50% vinnu. Þarf svo að fara að leita mér að annarri vinnu á Hvolsvelli, því vinnan í Félagsmiðstöðinni er bara seinnipart dags.......


En já eins og einhverjir sögðu í kommentunum að ég væri svo upptekin við að vera húsmóðir og færi því ekkert í tölvur, þá er það alveg rétt................. þetta er algjör snilld, maður er bara að steikja kleinur og flatbrauð alla morgna, fer svo yfirleitt í brauðið eftir hádegi, og tek sætabrauðið annan hvern dag, þá seinni part dags..................

Lumar einhver á góðri LUMMU uppskrift???

Þarf líka endilega að fara að selja Hondu brakið mitt, og fá mér station...vantar einhverjum bíl???................. SKO EÐALVAGN :D:D

En stelpan er í bænum um helgina........................ ef einhver vill hitta á mig, hef ég lausan tíma á sunnudagskveldið........... er annars að vinna stíft.... til að eiga pening fyrir hveitinu :D:D.....hehehe

Jæja ég er hætt að bulla, og farin að vinna

Kiss kiss...................  fer að reka á eftir símakallinum á Hvolsvelli til að tengja tölvuna mína

Góða helgi

Gömlu bloggin mín

en gaman

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíđukubbur