Auglýsing

Helv veður í Reykjavík þessa dagana!!!!

26. júní 2006 klukkan 22:52
Já ég segi nú ekki annað.

Skrapp norður í land á laugardaginn......og á Blönduósi var GEGGJAÐ veður. Kom seinnipart á laugardaginn. Fór og kíkti á Grím keppa í fótbolta, en smábæjarleikarnir voru á Blönduósi þessa helgi, og held ég að íbúatala Bæjarins hafi tvöfaldast, fullt af liði í bænum, og mikið af tjöldum og fellihýsum.
Á laugardagskveldið var grillveisla hjá familíunni, og svei mér þá ef bara öll fjölskyldan hafi ekki verið mætt..........:D:D

Á sunnudeginum var einnig vaknað snemma til að fara niður á völl og horfa á leiki...... einnig var maður nú með annað augað á HM...........ánægð með Þjóðverjana að vera komnir í 8 liða úrslit, spurning hvort þeir taki Argentínumenn.......vona það!!!!

Fór í afmælisveislu á Blönduósi í gær hjá honum Pétri Ari. Engar smá kræsingar á boðstólnum þar...............maður missti sig aðeins.....en maður er ekki lengi að hlaupa það af sér....hehehe

Og Pétur Ari á einmitt afmæli í dag, og er gæinn orðinn 4ra ára gamall.

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SÆTILÍUS!!!!!

En svo vil ég líka óska vinkonu minni henni Berglindi Mjöll til hamingju með daginn á morgun, en skvísan verður 26.ára á morgun.....kiss kiss

En framundan síðustu leikir á HM.......og verður forvitnilegt að sjá hverjir verða heimsmeistarar............ er svona aðeins að spá í úrslitin, en þetta kemur allt saman.

tjúsí frúsí

Fótbolti fótbolti og aftur fótbolti

23. júní 2006 klukkan 03:50

Já ég hef nú svo sem ekki um mikið annað að tala en fótbolta þessa dagana......

ENDA ER FÓTBOLTAVEISLA :D:D

Er búin að vera að horfa á flest alla leikin á HM, skrepp á Players, eða til Eysteins eða í vinnunni........þannig að maður er inni í öllu sem er að gerast það, og vona ég svo sannarlega að mínir menn ´Þjóðverjar taki þetta :D:D


En annars bara nokkuð fín vika, búin að standa mig VEL í gymminu og viktin fer niður á við þessa dagana......sem er BARA gaman.....þar sem hún er ekki búin að fara niður á við frekar lengi


Skellti mér í Víkina í kveld og horfði á viðureign Víkinga-FH og endaði leikurinn 0-0 samt lá mark hjá Víking í loftinu mest allan tímann, og höfðu þeir yfirhöndina í leiknum, sérstaklega þar sem FH-ingar spiluðu manni færri mest allan tímann.........en samt jafntefli á móti góðu liði FH telst bara nokkuð gott........:D:D


Ég er víst komin í gott helgarfrí núna, ekkert planað svo sem....enda frekar blönk svona í lok mánaðarins. En allaveganna fer ég á leik á morgun Fram-Þróttur á laugardagsvelli, og er það svona eina planið, og svo getur vel verið að maður kíki norður yfir heiðar á laugardeginum...........:D:D


En annars ætlaði bara svona að koma með smá innlegg..........best að leggjast fyrir framan sjónvarpið og horfa á fótboltakveld......


Góða helgi :D:D

Til hamingju með daginn íslendingar!!!

18. júní 2006 klukkan 06:27

17.júní í dag, og allt að gerast!!!

Langt síðan ég hef komið með blogg.....kannski vegna þess að það er búið að vera mikið að gera hjá mér.....

Annars hefur þessi vika sem er að líða verið frábær......sérstaklega þar sem ég er komin sterk inn í líkamsræktina á ný og mætti í ræktina alla daga vikunnar, og það hefur bara ekki gerst í margar vikur......og stefnan tekin á að hrista af sér 10 kg í sumar, áður en ég fer að spóka mig í bikini út á Spáni í lok ágúst :D:D:D

Fimmtudagurinn hjá mér var algjör fótboltaveisla......horfði einn leik á´HM um daginn svo skellti ég mér í Frostaskjólið um kveldið......ekki par ánægð með úrslitin á þeim bænum.....issss en ég gat glaðst aðeins þar sem ég skellti mér eftir KR-Víking leikinn á Valbjarnarvöll og viðureign Þróttar- HK í bikarnum, og voru það mínir menn í Þrótt sem báru sigur úr bítum......þannig að maður gat aðeins brosað ;)


Skellti mér á Hvolfsvöll á föstudaginn.......þrælskemmtilegt í sveitinni, fór í 50 ára afmæli og það var flæðandi brennivínið....en þetta var þrælgaman, og minnti mig heilmikið á Blönduós, sérstaklega þegar kemur einhver nýr í bæinn þá eru allir að slúðra og glápa...hehehehe..lenti aðeins í því :D:D......bara gaman....


Annars bara búin að vera að vinna í allan dag, horfði á landsleikinn í Handbolta í vinnunni........og ég hélt ég myndi fara á taugum á völdum köflum í leiknum.......... en þetta var FRÁBÆR SIGUR...................BARA SNILLD.......


En jæja vinnudagur á morgun


Verið hress.... ekkert stress bless bless


Helgin!!!

12. júní 2006 klukkan 02:26

Jæja þá er þessi helgi senn á enda.

Helgin hefur að mestu leyti farið í vinnu. Var að vinna næstuvakt alla helgina og er að fara á síðustu næturvaktina mína í törninni núna á eftir.


En á laugardaginn var nýjasti fjölskyldumeðlimurinn skírður í Hjallakirkju í Kópavogi og fékk það fallega nafn


Haraldur Björgvin.


Sem er í höfuðið á öfum hans.


Til hamingju með nafnið!!!! Annars var veislan hjá þeim í Hlynsölum alveg frábær. Og fer vikan í það að hrista af sér kræsingarnar....hehe


Greta systir kom heim frá Boston í morgun, og færði mér margar skemmtilegar gjafir. Gaf mér t.d. geggjað flottan bol, svo verslaði hún fyrir mig í Victoria Secret og tösku og belti utan um i-podinn minn svo ég geti farið að fara með hann í gymmið......... takk fyrir mig systa ;)

Annars skellti ég mér á fótboltaleik núna í kveld.

Breiðabik-FH..........og endaði leikurinn 1-1......algjör snilld að þeir stoppuðu sigurgönug FH....... Stjáni helvíti öflugur, man nú samt hvað ég tók hann alltaf í nösina hérna í denn tid, þegar við fórum í fótbolta í leikfimistímum í íþróttahúsinu á Blönduósi......hehehe

Jæja helgarsportið fer að byrja.................. Júní mánuður á eftir að vear ansi skemmtilegur, ég veit ekki hvernig maður á að fara að að fylgjast með öllum þessum leikjum sem eru í gangi

En ég er heit fyrir þjóðverjunum á HM.....


EGILSSTAÐADJAMMIÐ!!!

08. júní 2006 klukkan 02:22
Jæja þá er maður loksins búinn að jafna sig eftir svaðalega ferð austur í land. Veit ekki alveg hvort ég nenni að blogga um ferðina......... en ferðasöguna í heild sinni er hægt að sjá hér

http://www.blog.central.is/berglindmjoll?page=comments&id=1967972

Annars vona í grófum dráttum

* Fórum suðurleiðina til Egilsstaða, ég var tekin af löggunni, látin blása, og var ekki með ökuskírteini

* Villtumst á leið, fórum Fossárdalinn í staðinn fyrir Öxi, þar að leiðandi lengdist ferðin um svolítinn tíma....en það var BARA fyndið!!

* Stoppuðum í MÖRGUM sjoppum á leiðinni...hugsa að ég fari ekki til Hafnar í bráð.

* Höfðum það SVAÐALEGA gott í heitum potti......

* Fengum frábæran grillmat (takk fyrir mig) :D:D

* Shellið og pizzurnar gerðu góða hluti.

* Kallarnir á Kárahnjúkum létu eins og Ixna beljur þegar þeim er hleypt út á vorin....hehehe

* Á mig sveif lalalalallalalaalallalaalla

* Gin í tónik teigað þokkalega........... sumir fengu olnbogaskot og Hvítvín í augað, sökum hamagangs í sumum....

*   "THE" Kagginn gerði GÓÐA hluti.

* Næturvörðurinn á hótel Héraði er fýlupúki.

* Sumir fengu viðurnefnið FEIKER.........HAHAHAHAHAHAHA

* Bústaðurinn skiptist í Greddukot, ýldukot, Kroppakot, og Landakot....... greddukot gerði bestu hlutina.... NOT!! (Allaveganna ekki hjá öllum)

* Eiðavatn á flottum sólskinsmorgni, í björgunarvesti á árabát með bjór í annarri......klikkar ekki ;)

* Gaman að hitta Frosta......helvíti nettur orðinn ;)

* Hitti fleiri Laugalimi, t.d. Gudda, Steina og Finn.....gaman gaman

* Sumir voru næstum því búnir að kaupa Yaris, en fór betri leiðina og fór í allan pakkann

* Sumir átu YFIR sig......af EXTRA

* Leyndardómur Toppsins, það sló helvíti á mann.......

* Erla var dugleg að ferja liðið frá Eiðum, til Egilsstaða, til Fellabæjar og Eiða og Egilsstaða og Fellabæjar.

* Surtlur og svart drasl!!!...:D:D

* Bylgja var sko þokkalega búin að undirbúa dagana.....sem var BARA frábært:D:D

* Hún á líka bara dúllu barn:D:D

* Fórum norðurleiðina heim.....

* Þannig að við keyrðum hringinn í kringum landið

* Alls rúmlega 1700 kílómetra.

* Annars var þetta frábært í alla staði

*Svarthvíta hetjan stóð fyrir sínu

*þurftum ekki að borga krónu á barnum, alllaveganna ekki á laugardagskveldið.....

* Fyrir þær stelpur sem fýla útlendinga, þá eru Egilsstaðir eins og PARADÍS....hehehe

* Jæja þetta er komið gott, tók fullt af myndum.......

Annars er myndasíða á þessu nýja bloggi mínu, er að henda þessu inn...............

Gömlu bloggin mín

en gaman

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur