Auglýsing

ALLT NÝTT!!!!!!!1

26. júní 2007 klukkan 18:11
Langt síðan síðast.......

En ég er komin með nýja bloggsíðu og er slóðin á hana

http://www.123.is/kristin80


Það eru komnar inn fullt af myndum og enn fleiri eftir að koma og ný færsla

það er framtíðin, endilega breyta mér þið sem eruð með mig sem link...:D:D

Yndislegur gærdagur!!!!

14. maí 2007 klukkan 23:18
Jamms...... þá erum kosningarnar búnar.... fóru bara ágætlega.

önnur saga að segja af Eurovision.....

En annars áttum við familían bara mjög svo góða helgi. Ég fór með Gunna að kjósa á laugardeginum, svona til að fá aðeins þefinn af því að fara inn á kjörstað, þar sem ég kaus utan kjörstaðar.

Á laugardagskveldið var grillað Caj Ps læri að hætti SS manna, og var það alveg geggjað gott, var nebblega að smakka það í fyrsta skiptið!!

Birkir vinur Gunna og hans familía komu í mat., já og þau eignuðust dóttur í dag TIL HAMINGJU með það (þótt ég viti að þau lesi nú ekki bloggið mitt)...hehe.. held að caj ps lærið hafi komið þessu af stað, hún var gengin smá fram yfir.

En gærdagurinn kom HELDUR betur á óvart. Við familían skelltum okkur sunnudagsbíltúr í góða veðrinu. Fórum rúnt inn í Fljótshlíð og ákváðum svo að skella okkur að Seljalandsfossi, fórum heim og náðum í besti til að fara í PIK NIK og svo var brunað af stað. Á leiðinni hringdi Gunni símtal og breyttist ferðin snökkt, já kallinn hringdi í Flugfélagið í Vestmannaeyjum og pantaði bara flugvél handa familíunni til VESTMANNAEYJAHlæjandiHlæjandi smá óvissuferð

En ég ætlaði sko EKKI að fara þar sem ég er ógeðslega flughrædd. Stelpurnar höfðu aldrei farið í flugvél áður og fannst þeim þetta GEGGJAÐ spennandi, og Theodóra sagðist sko ætla að passa mig ef ég væri hrædd... en nei hún var nú manna hræddust þegarvið vorum komin í loftið...hehe Hlæjandi bara sætt

Bakkaflugvöllur er nú bara hérna rétt hjá og tók flugið bara 6 mínútur, við fengum GEGGJAÐ veður, fórum í loftið kl 16:00 og þegar við lentum tókum við leigubíl, sem rúntaði aðeins með okkur um eyjuna sem var MJÖG fróðlegt og gaman. Svo var farið niður á höfn og borðað á nýjum veitingastað þar. Svo röltum við aðeins um höfnina, og svo löbbuðum við frá höfninni í gegnum bæinn og á flugvöllinn sem voru ca 5 km, og sumir voru orðnir HELDUR þreyttir á þessu labbi í lokin Svalur, og vorum komin í loftið aftur kll 19:15. Þetta var alveg GEGGJAÐ að fara bara svona óvænt..... GAman að eiga svona YNDISLEGAN kærasta, sem fær svona sniðugar hugmyndir.....hehehehe

hér koma nokkrar myndir frá óvissuferðinni

Við flugvélina
Theodóra og Ingibjörg að fara í loftið í fyrsta skiptið

smá smeik
Smá hræðsla í byrjun

gaman
Bústaðurinn hans Árna Johnsen (eða ég veit það ekki)

keikó
Theodóra og Ingibjörg (og gamla heimili Keikós í baksýn)

stuð í eyjum
Feðginin

á höfninni
Við stelpurnar við höfnina

jújú
Sú yngsta var orðin HELDUR þreytt á þessu labbi (búin með ca 4,5 km þarna :):))

gaman
Flugstjórarnir á leiðinni heim.....:):):)

ja
Séð yfir Vestmannaeyjar

Segi þetta fínt í bili

adios

x-??????????????????

09. maí 2007 klukkan 20:34
Katla og Davíð eignuðust lítinn prins á laugardaginn þann 05.05 vil ég óska Kötlu, Davíð og Lúkasi INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ PRINSINN.... HLAKKA geggjað til að fara og sjá hann Hlæjandi


jamm og já ýmislegt að gerast framundan


KOSNINGAR-Eurovision-KOSNINGAR og aftur kosningar

Ekkert nema frambjóðendur að koma og skoða SS þessa dagana og skilja eftir sig gommu af RUSLPÓST........

Ef ég hefði nú aðeins undirbúið mig fyrir þessar kosningar, og fært lögheimili mitt frá Blönduósi á Hvolsvöll, þá væri ég 100% viss um hvað ég ætlaði að kjósa, því ég hef alveg verið inn í kosningabaráttunni hérna á Suðurlandi...... sérstaklega þar sem þetta er MIKIÐ rætt í vinnunni s.s. SS :):)

En stelpan er búin að kjósa, og hreinlega hafði ég ekki hugmynd um hvað ég vildi kjósa, nema hvað ég myndi ALDREI kjósa Samfylkinguna!! Punktur.

En svo bara Eurovision á morgun og aftur á laugardaginn, verð í Eurovisionpartý annað kvöld með gommu 14 og 15 ára unglingum, sem verður ábyggilega BARA gaman:D:D

Stefnan er svo að vera á laugardagskveldið í faðmi fjölskyldunnar, öll börnin heima... verður bara kósýKoss Ætlum að elda góðan mat og kannski maður fái sér smá Red wine með því ;)

En annars Boltinn að fara á fullt...... og í 1 deildinni er Þrótturum spáð 3 sæti, og vonandi enda þeir fyrir ofan það, en þriðja sætið myndi samt tryggja það að fara upp, þar sem þrjú lið fara upp í LAndsbankadeildina....

Annars er ég bara HRESS FRESS........... kannski nema hún SVAVA mín er að fara af landi brott á föstudaginn, og á ég eftir að sakna hennar MIKIÐ MIKIÐ MIKIÐ GrátaGráta En vonandi hefur hún það gott þarna úti og á það virkilega SKILIÐ að láta sér líða vel og láta drauma sína rætast Hlæjandi KISS KISS SVABBI MINN!!

Jæja grillblað gestgjafans var að koma í dag, best að fara að sökkva sér ofan í nýjustu uppskriftirnar....hehe

KISS KISS

OG ÁFRAM EIRÍKUR!!!!!!!!!

OG X-?????????????????

Nýtt útlit

26. apríl 2007 klukkan 16:46
já líka svona SVAÐALEGA smart!! Svalur

Annars fínt að frétta héðan frá Hvolsvelli

Loksins létu þær SVava og Lára af því að kíkja á mig á Hvolsvöll, Lára keyrði meira að segja alla leið frá AKUREYRI bara til að hitta Pinnann sinn Koss Þegar stelpurnar komu í bæinn fór ég nú fljótlega að sýna þeim staðinn fallega:D..... og þeim fannst nú mest spennandi að sjá Pylsuparið sem Prýðir SS kjötvinnsluhúsið svona fallega, og þurfti ég að taka nokkrar myndir af þeim með parinu fræga, og ég skammaðist mín nú svolítið að standa þarna úti að taka mynd af þeim, en sem betur fer kominn enginn þarna sem þekkti mig.....hehehee Hlæjandi

Yndislega ástin mín hann Gunni grillaði svo ofan í okkur stöllur eins og honum er einum lagið, hann er svo yndislegur Brosandi og stelpurnar voru ekki svkiknar af mat ala GUNNI.... einn besti kokkur sem til er.... elska að láta hann elda ofan í mig ;);) Svava fór svo aftur í bæinn um kveldið en Lára gisti nú hjá okkur :D.... Við skelltum okkur á dansiball á Hellu, og ætla ég ekki að hafa mörg orð um það hér, nema það var PRUMP!!

En ég var að hlusta á morgunþáttinn Zúúber á FM 957 einhvern tímann í vikunni og þar voru þau að ræða hvað þau væru búin að búa á mörgum stöðum síðustu 10 ár eða væru búin að flytja oft, og ég fór eitthvað að taka það saman hvað ég hef oft flutt og það er bara ansi oft!!!! s.s. á 10 árum, 17 árin þar á undan bjó ég ALLTAF á sama staðnum, þ.e.a.s. Hótel MÖMMU OG PABBA

Melabraut 21 Blönduósi
Heimavist á Laugum
Flétturimi 10 (hjá Svenna frænda)
Boðagrandi í Vesturbænum (með Höbbu minni)
Gullsmára í Kópavogi (með Höbbu minni og Brynjari og Bent bumbubúa :))
Hverfisgötu í 101 (með Berglindi minni og Ernu)
Fellsmúla í Rvk (með Pétri Geir)
Horb am Neckar í Þýskalandi
Bad Mergentheim í Þýskalandi
Jörfabakka 32 (hjá Svabba mínum)
Hlynsalir 1 (hjá Eysteini og Hildu)
Krossalind í Kópavogi (alone)
Kórsalir í Kópavogi (með Dodda og svo Höbbu líka)
Norðurgarði 9 Hvolsvelli (með Gunna mínum og fósturdætrum)

Vá þetta er dálítið mikið, svo var maður nú heimalingur á sumum stöðum, en eins og hjá Svövu og Eysteini og Hildu var ég reyndar bara stutt!!

En Allir að horfa á Skólahreysti í kvöld, því stelpurnar hérna á Hvolsvelli sem unnu Söngkeppni Samfés ætla að flytja atriðið í kvöld á Skjá einum í beinni kl 20:00!!

Páskar ofl

16. apríl 2007 klukkan 21:42
Jæja þá eru páskarnir búnir og daglega amstrið tekið við aftur. Við familían hérna á Hvolsvelli skelltum okkur á Blönduós á þriðjudegi og vorum í tæpa viku í norðurlandinu og komum aftur mánudaginn annan í páskum.......

Það var ÆÐISLEGA gott að komast heim í smá tíma. Það var ýmislegt brallað, Gunni fór með Eysteini bróður og Grím bróður í sleðatúr einn daginn, svo fórum við mikið í sveitina að fjórhjólast.....

Smá sýnishorn af páskunum.
Ingibjörg og Gunni



Ingibjörg og Gunni í Bakkasveitinni Hlæjandi

sætaferðir

Sætaferðirnar um Vatnsdalinn....hehe

Amma og stelpurnar

Amma og skvísurnar Ingibjörg og Theodóra

gaman saman

svaka stuð á leiðinni heim á Blönduós eftir að hafa verið á Bakka

strákarnir

Strákarnir á fjöllum!!!

ég

Stelpan, aðeins búin að vera að spænast í drullu....heheUllandi

Já páskarnir voru þrælfínir!!!

En annars gott að frétta héðan frá Hvolsvelli. Katla, Davíð og Lúkas Kató kíktu á okkur í gær, og var ROSALEGA gaman að fá þau í heimsókn, við grilluðum og spjölluð....... þau þurfa bara að fara að koma oftar Hlæjandi Katla á ekki nema tvær vikur eftir af meðgöngunni, þannig að hún er komin á steypirinn, ég giska á að hún komi með litla sæta strákinn þann 20.apríl sem er á föstudaginn

Annars er hún Greta systir mín 26 ára á morgun og vil ég óska henni innilega til hamingju með daginn....

Þangað til næst....

Heyrðu já svo næsta helgi, það verður stuð.... Sjálfur LALLI SPRINGFIELD ætlar að mæta á Hvolsvöll og mála bæinn RAUÐANN........ spurning um að vara bæjarbúa við!!!! hehehe

APRÍLGABB!!!

01. apríl 2007 klukkan 23:45
Isss pissss

Það hefur nú sjaldan verið hægt að gabba mig eitthvað þennan dag...... ENNNN í morgun var ég þokkalega göbbuð..... var ný vöknuð og ógeðslega mygluð. Vorum stödd í Grindavík um helgina hjá systur hans Gunna og co. Svo kem ég fram og þar sitja mágur hans Gunna og Gunni, og segja mér það að það sé búið að keyra á nýja fína bílinn minn og stuðarinn og alles í rúst..... ég fékk VÆGT SJOKK!!! Hljóp út til að kíkja á þetta.... en fattaði svo á fartinu að þeir væru nú aldeilis að GABBA mig......... ég ekki sátt...... og EKKI sú morgunglaðasta!! Saklaus

En annars vorum við í Grindavík alla helgina í afslöppun sem var bara helvíti nice..... komum heim bara í kvöld.

En svo er það bara THE Blönduós city á þriðjudaginn...... OHHHHH hvað það verður gott að komast heim

Hef aðeins heyrt að einhverjir Blönduósingar halda að ég sé mætt á dósina..... líklega því þeir sjá núna HONDUNA mína PV-788 ÞEYSAST um göturnar.... og nei það er víst EKKI ég og EKKI kærastinn minn að keyra....heheheUllandi

Ég var nú svo sniðug að selja hana bara á Blönduós.... og ég er nú ekki hissa að einhverjir halda að það sé ég, þar sem ég átti þessa elsku í 8 ár...... og verð að segja að það er MIKIL EFTIRSJÁ... og auðvitað kenna allir þennan bíl við mig Hlæjandi

kiss kiss

Orðin árinu eldri!!!

22. mars 2007 klukkan 13:48
Jæja þá er maður aldeilis búinn að eldast. Því jú maður varð víst 27 ára gamall í gær.......... og svei mér þá hvað það styttist í fertugsaldurinn Óákveðinn

Ég vil þakka öllum sem sendu mér afmæliskveðju í gær eða hringdu í mig... alltaf gaman þegar fólk gleymir manni ekki....hehehe (já BERGLIND) HlæjandiHlæjandi

En annars var dagurinn bara MJÖG fínn........ maður er nú ekki vanur svona stjani eins og ég fékk í gær!!!

Ég var að vinna til kl 13:00 í gær og þegar ég kom heim beið mín stór og flottur rósavöndur og ilmkerti..... svo sætt Koss

Svo fyllti kallinn kjúklingabringur og eldaði og bjó til kartöflubáta, gott salat og fullt meira með því........... ég á svo YNDISLEGAN MANNUllandi

Þannig að afmælisdagurinn heppnaðist MJÖG VEL!!


Einnig átti Svenni frændi afmæli 18.mars og kallinn varð 47 ára
Jenný Rebekka varð 5 ára þann 19 mars og Lúkas Kató 2ja ára þann 20 mars og vil ég óska þeim INNILEGA til hamingju með daginn Hlæjandi

Svo bara páskarnir á næsta leiti..... Stefnan er tekin á norðurlandið.... nú er bara að vona að snjórinn haldi sig eitthvað svo maður geti kíkt á SLEÐA!!!!!

kv Kristín (gamla)...hehe

Yessssss

19. mars 2007 klukkan 16:07
Djöfull sem tíminn líður þessa dagana, það er nú bara ekki venjulegt.

En síðasta færsla hjá mér var nú bara dáldið grín......... en stelpan ákvað í síðustu viku að hætta að NANGA NEGLURNAR....... eitthvað sem ég hef gert frá því ég man eftir mér!!!! En ég fór út í apótek og keypti mér MAVALA STOP sem er ógeðslegt eitur sem ég set á neglurnar, og það er ÓGEÐSLEGT á bragðið og ég get ekki HUGSAÐ mér að stinga puttunum upp í mig, eitt samt pirrandi ég má varla koma með puttana nálægt andlitinu á mér, þá er ég komin með bragðið í munninn... jjjaaakkkkk!!

En annars fín helgi hjá mér. Fór á Dömukvöld sem var haldið í Hvolnum, sem er Félagsheimilið hérna á Hvolsvelli. Þar voru saman komnar u.þ.b. 100 konur í bananastuði. Þetta var allt rosa kósý og gaman. Það var happdrætti, stelpurnar í Ungfrú Suðurland voru með undirfatasýningu (hefði nú viljað frekar sjá karlmenn í þessi djobbi....hehehe) Hreimur kom og tók nokkra góða slagara  og svo var GEGGJAÐ góður matur, svona heilsumatur:D:D og ball á eftir.......... og auðvitað var kokteill íi boðinu og BARINN á sínum stað........ ég var svolítið dugleg þar Ullandi

En maður náði nú að kynnast einhverjum konum hérna og var það bara stuð......... vona að þetta verði árlegt!!!

En er laus við þynnkuna sem ég barðist við í gær!!!! Það er sko greinilegt að ég er DOTTIN úr æfingu, því ég var komin í þrusu æfingu í þessu!!!!

Best að halda áfram að skúra!!!!

STÓR ÁKVÖRÐUN!!!!!!!

15. mars 2007 klukkan 13:27
Jæja þá tók maður STÓRA ákvörðun í gær!!!!!!!!!!

Með eitt sem hefur hrjáð mig síðan ég var lítil.................. þeir sem þekkja mig best....... vita um hvað málið snýst!!!!!!!

Guð hvað ég er fegin, og verð fegnari eftir dáldinn tímaSvalurHlæjandi

13.mars

13. mars 2007 klukkan 14:27
Halló hallló halló.............

Ég vil óska YNDISLEGASTA KÆRASTA Í HEIMI TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Í DAG, þessi elska hann Gunni er 32 ára í dag!!!!!!

Vil óska líka honum pabba mínum til hamingju með daginn í GÆR, en sá gamli varð 54 ára gamall..............

Það eiga þvílíkt margir afmæli í mars sem ég þekki....... EINTÓM GLEÐI.

Jæja þá er stelpan LOKSINS komin á nýjan bíl................. Hondan er nú samt búin að standa sig VEL þessi 8 ár sem ég hef átt þessa elsku og miklar minningar tengdar þessum bíl!!! En þar sem maður er komin með svo stóra familíu Hlæjandi þá verður maður að eiga STATION. Keypti mér Subaru Legacy wagon árgerð 2003....... helvíti nettur kaggi

En annars fínt að frétta fyrir utan það að kallinn er búinn að vera á spítala alla helgina, og er að verða geðveikur á að komast ekki að vinna!!!

Kiss kiss

Gömlu bloggin mín

en gaman

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur